Aron og félagar töpuðu í Barcelona

Aron Pálmarsson.
Aron Pálmarsson. Ljósmynd/Veszprém.

Aron Pálmarsson og samherjar hans í ungverska meistaraliðinu Veszprém máttu sætta sig við þriggja marka tap gegn Barcelona, 26:23, í Meistaradeild Evrópu í handknattleik í dag.

Aron skoraði 3 af mörkum Veszprém sem allan leikinn var að elta sterkt lið Barcelona en Börsungar höfðu frumkvæðið frá upphafi til enda.

Barcelona hefur unnið alla fimm leiki sína í riðlinum og er í toppsætinu með 10 stig en Veszprém er með 6 stig í 2.-3. sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert