Birna Berg fór á kostum

Birna Berg Haraldsdóttir.
Birna Berg Haraldsdóttir. mbl.is/Kristinn

Landsliðskonan Birna Berg Haraldsdóttir átti frábæran leik fyrir norska liðið Glassverket í Meistaradeild Evrópu í handknattleik í kvöld.

Birna Berg var óstöðvandi og skoraði 11 mörk fyrir norska liðið sem tapaði á heimavelli fyrir liði Buducnost frá Svartfjallandi en lokatölur urðu, 30:23.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert