Ólafur með fjögur mörk í Meistaradeildinni

Ólafur Guðmundsson.
Ólafur Guðmundsson. Ljósmynd/kristianstad

Íslendingaliðið Kristinstad gerði jafntefli við slóvenska liðið Celje Lasko, 29:29, á heimavelli í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í handknattleik í dag.

Ólafur Andrés Guðmundsson fyrirliði Kristinstad skoraði 4 mörk fyrir sænska liðið og þeir Arnar Freyr Arnarsson og Gunnar Steinn Jónsson skoruðu eitt mark hvor. Það stefndi allt í sigur í Kristianstad en Blaz Janc jafnaði metin með flautumarki.

Kristianstad og Celje Lasko er bæði með 3 stig eftir fimm leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert