Ný andlit í íslenska landsliðshópnum

Geir Sveinsson landsliðsþjálfari.
Geir Sveinsson landsliðsþjálfari. mbl.is/Golli

Geir Sveinsson, þjálfari A-landsliðs karla í handknattleik, hefur valið 21 leikmann fyrir leikina gegn Tékklandi og Úkraínu í undankeppni EM 2018 sem fram fara í næsta mánuði.

Sjá frétt mbl.is: Snorri Steinn hættur með landsliðinu

Ísland hefur leik miðvikudaginn 2. nóvember þegar liðið mætir Tékklandi í Laugardalshöll kl. 19.30. Þá heldur liðið til Úkraínu og leikur þar við heimamenn laugardaginn 5. nóvember kl. 16.00.

Geir Guðmundsson, Grétar Ari Guðjónsson og Ómar Ingi Magnússon eru nýliðar í hópnum, en hann er eftirfarandi:

Markmenn:

Aron Rafn Eðvarðsson, SG BBM Bietigheim
Björgvin Páll Gústavsson, Die Bergische Handball Club
Grétar Ari Guðjónsson, Selfoss 

Aðrir leikmenn:

Arnar Freyr Arnarsson, IFK Kristianstad
Arnór Atlason, Aalborg Handball
Arnór Þór Gunnarsson, Die Bergische Handball Club
Aron Pálmarsson, MKB Veszprém
Ásgeir Örn Hallgrímsson, Nimes
Bjarki Már Elísson, Füchse Berlin
Bjarki Már Gunnarsson, EHV Aue
Geir Guðmundsson, Cesson Rennes
Guðjón Valur Sigurðsson, Rhein-Necker Löwen
Guðmundur Hólmar Helgason, Cesson Rennes              
Gunnar Steinn Jónsson, IFK Kristianstad            
Janus Daði Smárason, Haukar
Kári Kristján Kristjánsson, ÍBV
Ólafur Andrés Guðmundsson, IFK Kristianstad
Ómar Ingi Magnússon, Aarhus Håndbold          
Rúnar Kárason, TSV Hannover-Burgdorf
Stefán Rafn Sigurmannsson, Aalborg Handball
Theodór Sigurbjörnsson, ÍBV

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert