„Þvílíkur handboltaheili“

Snorri Steinn Guðjónsson
Snorri Steinn Guðjónsson mbl.is/Eva Björk Ægisdóttir

Eins og fram kom í fjölmiðlum í gær hefur Snorri Steinn Guðjónsson ákveðið að leggja landsliðsskóna á hilluna og binda enda á 15 ára farsælan feril sinn með landsliðinu.

Aron Pálmarsson, samherji Snorra í landsliðinu til margra ára og leikmaður ungverska meistaraliðsins Veszprém, sendir Snorra góðar kveðjur á twitter-síðu sinni.

„Snorri er einn besti leikstjórnandi sem við höfum átt, einn sá besti sem ég hef spilað með. Þvílíkur handboltaheili, geggjaður ferill!“ skrifar Aron.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert