Þremur leikjum var að ljúka í 8 liða úrslitum norska bikarsins í handknattleik en þrjár íslenskar konur voru á ferðinni. Þórey Rósa Stefánsdóttir var með 6 mörk fyrir Vipers Kristiansand.
Vipers Kristiansand sigraði Byåsen Elite 33:32 í dag en eins og áður segir var Þórey með sex mörk í sjö tilraunum.
Birna Berg Haraldsdóttir var þá með þrjú mörk í átta tilraunum í 37:20 tapi Glassverket gegn Larvik.
Eva Björk Davíðsdóttir komst ekki á blað er Sola vann Molde Elite 29:27.