Birna Berg Haraldsdóttir, landsliðskona í handbolta, hefur verið valin leikmaður 2. umferðar í sjálfri Meistaradeild Evrópu.
Birna fór á kostum með norska liðinu Glassverket og skoraði 11 mörk gegn svartfellska stórliðinu Buducnost sem fór þó með sigur af hólmi.
Birna var ein þriggja leikmanna sem handknattleikssamband Evrópu tilnefndi sem leikmann umferðarinnar, og var Birna svo kjörin best í kosningu á miðlum sambandsins.
Hér að neðan má sjá helstu tilþrif Birnu í leiknum gegn Buducnost.
Congrats to our #ehfcl Player of Round 2, Birna Berg Haraldsdottir! Here's the best of her 11-goal performance for @glassverketelit. pic.twitter.com/YwYpXqmr2R
— EHF Champions League (@ehfcl) October 28, 2016