Sjö íslensk mörk í sigri Kristianstad

Arnar Freyr Arnarson.
Arnar Freyr Arnarson. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Sænsku meistararnir í Kristianstad unnu öruggan sigur á Karlskrona, 33:18, þegar liðin mættust í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld.

Arnar Freyr Arnarsson skoraði fjögur mörk fyrir Kristianstad, sem var sex mörkum yfir í hálfleik 14:8. Ólafur Guðmundsson skoraði tvö mörk og Gunnar Steinn Jónsson eitt. Kristianstad er á toppi deildarinnar með fjórtán stig eftir fyrstu átta leikina.

Þá skoraði Atli Ævar Ingólfsson fjögur mörk fyrir Sävehof sem lagði Ystad, 32:27. Atli Ævar og félagar eru með tólf stig eftir átta leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert