Steinunn féll niður um deild

Steinunn Hansdóttir féll niður um deild í dag.
Steinunn Hansdóttir féll niður um deild í dag. Ljósmynd: Eva Björg

Steinunn Hansdóttir og stöllur hennar í danska handknattleiksliðinu Skanderborg, féllu úr efstu deildinni þar í landi í dag, eftir 34:27 tap gegn Esbjerg. Steinunn skoraði eitt mark í leiknum. 

Skandeborg er aðeins með fjögur stig á botni deildarinnar, fjórum stigum á eftir Ringkobin sem er í næstneðsta sæti, þegar einni umferð er ólokið. 

Liðið hefur tapað níu af síðustu tíu leikjum sínum og er fall úr deild þeirra bestu því niðurstaðan. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert