FH náði í oddaleik með stórsigri

FH knúði fram oddaleik með sigri gegn KA/Þór í dag.
FH knúði fram oddaleik með sigri gegn KA/Þór í dag. mbl.is/Thorir O. Tryggvason.

FH og KA/Þór munu leika oddaleik í undanúrslitum umspilsins um sæti í úrvalsdeild kvenna í handknattleik á næsta tímabili eftir sannfærandi sigur FH í leik númer tvö í Kaplakrika í dag, 27:19.

FH jafnaði með þessu metin í 1:1 og oddaleikur liðanna fer fram á Akureyri á miðvikudagskvöldið.

FH-ingar voru með yfirburðastöðu eftir fyrri hálfleikinn í dag, 17:7, og Akureyringar náðu aldrei að svara fyrir það í seinni hálfleiknum.

Fanney Þóra Þórsdóttir skoraði 10 mörk fyrir FH og Laufey Lára Höskuldsdóttir 5. Martha Hermannsdóttir var markahæst hjá KA/Þór með 7 mörk og Katrín Vilhjálmsdóttir skoraði 4.

Sigurliðið á miðvikudaginn mætir Selfossi í einvígi um sæti í efstu deild en Selfyssingar unnu HK 2:0 í einvígi liðanna sem lauk í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert