Selfoss áfram í úrvalsdeildinni

Perla Ruth Albertsdóttir var öflug í kvöld.
Perla Ruth Albertsdóttir var öflug í kvöld. mbl.is/Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Selfoss tryggði sér í kvöld áframhaldandi veru í úrvalsdeild kvenna í handknattleik með stórsigri á KA/Þór á Selfossi, 38:23. Selfyssingar unnu þar með einvígi liðanna 3:0.

Staðan var 21:12 að fyrri hálfleiknum loknum og aldrei spurning hvoru megin sigurinn myndi lenda.

Perla Ruth Albertsdóttir átti góðan leik fyrir Selfoss og skoraði 11 mörk og næst kom Dijana Raojevic með 8 mörk.

Hjá KA/Þór var Ásdís Guðmundsdóttir markahæst með fimm mörk en Þóra Björk Stefánsdóttir skoraði fjögur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert