Bjarki Már Elísson og félagar í Füchse Berlín þurftu að sætta sig við 30:22 tap gegn Göppingen í úrslitaleik EHF-bikarsins í Göppingen í dag. Bjarki skoraði tvö mörk í leiknum.
Göppingen var með 15:13 forskot í hálfleik, en Bjarki Már og félagar voru ekki nægilega góðir í síðari hálfleik.
Hans Lindberg og Petar Nenadić skoruðu sjö mörk fyrir Berlín og Lars Kaufmann skoraði átta fyrir Göppingen.