„Fékk mér banana í hálfleik“

Ólafur Ægir Ólafsson og Gísli Þorgeir Kristjánsson eigast við.
Ólafur Ægir Ólafsson og Gísli Þorgeir Kristjánsson eigast við. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Ég fékk mér einn banana að borða í hálfleiknum og hann gerði mér ansi gott,“ sagði Valsmaðurinn Ólafur Ægir Ólafsson við mbl.is eftir að Valsmenn tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik eftir sigur á FH í hreinum úrslitaleik í Kaplakrika.

Mikill hamur rann á Ólaf í seinni hálfleik og hann skoraði á skömmum tíma fjögur afar mikilvæg mörk eftir að hafa átt frekar erfitt uppdráttar í fyrri hálfleiknum.

„Ég var ekki alveg að finna mig í fyrri hálfleiknum en ég nýtti mér glufurnar í vörn FH í síðari hálfleik og þá gengu hlutirnir miklu betur. Ég hugsaði að ég yrði að taka af skarið og okkur tókst það sem við ætluðum okkur. Þrátt fyrir að vera á eftir FH-ingum í fyrri hálfleiknum þá höfðum við engar áhyggjur. Við héldum ró okkar og náðum smátt og smátt að taka leikinn yfir.

Stórkostlegu tímabili er lokið sem maður á eftir að muna lengi eftir. Þátttakan í Evrópukeppninni gaf okkur mikið og allt þetta rugl sem átti sér stað úti í Rúmeníu þjappaði hópnum bara enn meira saman. Það er geggjuð tilfinning að hafa landað titlinum og ég held að þetta sé rétt að byrja hjá Val,“ sagði Ólafur Ægir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert