Arnór og Bjarki sterkir en töpuðu sárt

Arnór Þór Gunnarsson í leik með Bergischer.
Arnór Þór Gunnarsson í leik með Bergischer. Ljósmynd/Bergischer HC

Íslendingaliðin Füchse Berlín og Bergischer töpuðu bæði leikjum sínum í þýsku 1. deildinni í handknattleik í kvöld en íslensku landsliðsmennirnir voru áberandi.

Bjarki Már Elísson skoraði fimm mörk fyrir Berlínarliðið sem tapaði á sárgrætilegan hátt fyrir Gummersbach, 28:27, en Bjarki var meðal markahæstu manna hjá Füchse. Liðið er í fjórða sæti deildarinnar þegar tvær umferðir eru eftir.

Arnór Þór Gunnarsson var markahæstur hjá Bergischer sem tapaði á heimavelli fyrir Melsungen, 28:26. Arnór skoraði sjö mörk í leiknum, en lið hans og Björgvins Páls Gústavssonar er tveimur stigum frá falli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert