Geir Sveinsson, landsliðsþjálfari í handknattleik, hefur bætt tveimur leikmönnum í hópinn fyrir leikinn gegn Úkraínumönnum í undankeppni EM sem fram fer í Laugardalshöllinni á sunnudagskvöldið.
Geir hefur bætt þeim Ágústi Elí Björgvinssyni, markverði úr FH, og Atla Ævari Ingólfssyni, línumanni úr Sävehof, í hópinn en landsliðið er á heimleið eftir tapið gegn Tékkum í Brno í gær.
Landsliðshópurinn er nú 19 leikmenn en í honum eru þeir 16 sem tóku þátt í leiknum gegn Tékkunum í gær sem og Ýmir Örn Gíslason sem var 17. maðurinn í leiknum í gær.