Edda Þórunn í Aftureldingu

Edda Þórunn Þórarinsdóttir
Edda Þórunn Þórarinsdóttir Ljósmynd/Facebook síða Aftureldingar

Handknattleikskonan Edda Þórunn Þórarinsdóttir hefur gengið í raðir Aftureldingar frá Gróttu. Edda er línumaður og er uppalin í KR, en hefur leikið í sex ár með Gróttu. Hún er fædd árið 1996. 

Afturelding er stórhuga fyrir næsta tímabil í kvennahandbolta og ætlar liðið að gera harða atlögu að sæti í efstu deild á næsta tímabili. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert