Gísli gerir nýjan samning við FH

Gísli Þorgeir og Ásgeir Jónsson, formaður handknattleiksdeildar FH, eftir undirskrift …
Gísli Þorgeir og Ásgeir Jónsson, formaður handknattleiksdeildar FH, eftir undirskrift dagsins. Ljósmynd/FH

Einn efnilegasti handboltamaður Íslands, FH-ingurinn Gísli Þorgeir Kristjánsson, hefur framlengt samning við Hafnarfjarðarfélagið og mun hann leika með liðinu næsta vetur. Gísli hefur verið orðaður við þýska stórliðið Kiel að undanförnu. 

Gísli átti mjög gott tímabil síðasta vetur og var hann sérstaklega öflugur í úrslitakeppninni. Hann er fæddur árið 1999. 

„Það er ánægjulegt að Gísli Þorgeir verði áfram hjá okkur næsta vetur. Við ætlum okkur að gera betur en á síðasta tímabili, sem var þó frábært hjá okkur FH-ingum. Gísli er mjög stórt púsl í þeirri mynd sem við FH-ingar sjáum fyrir okkur í lok næsta tímabils,“ sagði Ásgeir Jónsson, formaður handknattleiksdeildar FH.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert