Handknattleiksdómararnir Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson dæma annað kvöld viðureign þýsku meistaranna Rhein-Neckar Löwen og Wisla Plock frá Póllandi í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í handknattleik karla.
Leikurinn fer fram í Harres Veranstaltungs Halle í St. Leon-Rot, skammt sunnan við Heidelberg í
Þýskalandi.
Alexnder Petersson og Guðjón Valur Sigurðsson leika með þýsku meisturunum. Guðjón Valur hefur ekkert leikið með liðinu fram til þessa á keppnistímabilinu vegna meiðsla.
Leikurinn annað kvöld verður sá fyrsti sem Anton Gylfi og Jónas dæma í Meistaradeildinni á þessu keppnistímabili. Þeir dæmdu sjö leiki í Meistaradeild karla á síðasta keppnistímabili.