Viggó heldur áfram að gera góða hluti

Viggó Kristjánsson í leik með West Wien.
Viggó Kristjánsson í leik með West Wien. Ljósmynd/Heimasíða austurríska handboltasambandsins

Viggó Kristjánsson heldur áfram að gera góða hluti með West Wien í austurrísku A-deildinni í handknattleik en hann var markahæstur á vellinum í 30:24-sigri á Graz á heimavelli í kvöld. Viggó skoraði átta mörk í leiknum en hann er markahæsti maður liðsins á tímabilinu til þessa með 48 mörk í níu leikjum. 

Ólafur Bjarki Ragnarsson skoraði tvö mörk í leiknum í kvöld, en Hannes Jón Jónsson þjálfar West Wien. Íslendingaliðið er í 2. sæti deildarinnar með sex sigra eftir níu umferðir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert