Lærimeyjar Þóris unnu stórsigur

Þórir Hergeirsson.
Þórir Hergeirsson. AFP

Stelpurnar hans Þóris Hergeirssonar í norska kvennalandsliðinu í handknattleik unnu í kvöld stórsigur á Suður-Kóreu, 39:28, í fyrsta leik sínum á Möbelringen Cup-mótinu.

Línumaðurinn Heike Löke sneri aftur til leiks fjórum mánuðum eftir að hafa fætt barn og þessi frábæri leikmaður sýndi að hún hefur engu gleymt. Löke skoraði 7 mörk líkt og þær Amanda Kurtovic og Camilla Herrem.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert