Óvænt tíðindi bárust í dag þegar Frakkar tilkynntu 28 leikmenn til þess að velja úr fyrir Evrópumótið í handknattleik sem fram fer í Króatíu í næsta mánuði.
Hinn 41 árs gamli Thierry Omeyer, einn besti handknattleiksmarkvörður síðari tíma, er í hópnum en hann hætti með landsliðinu eftir HM í Frakklandi í janúar á þessu ári. Endurkoma hans hefur því vakið athygli, en ekki er ljóst hvort hann fari á EM.
Hinn 41 árs gamli Omeyer hefur unnið nánast allt sem hægt er að vinna í handboltanum, en hann hefur spilað með PSG frá árinu 2014.