Ekkert mál fyrir Stjörnuna í Safamýri

Egill Magnússon skoraði níu mörk í kvöld.
Egill Magnússon skoraði níu mörk í kvöld. mbl.is/Kristinn Magnússon

Stjarnan átti ekki í miklum erfiðleikum með að leggja Fram að velli, 30:20 í Olísdeild karla í handbolta í dag. Staðan í hálfleik var 19:6, Stjörnunni í vil, en leikið var í Safamýri. 

Egill Magnússon átti stórleik fyrir Stjörnuna og skoraði níu mörk. Garðar Benedikt Sigurjónsson, Andri Hjartar Grétarsson og Leó Snær Pétursson skoruðu fjögur mörk hver. Matthías Daðason skoraði fimm mörk fyrir Fram og Lúðvík Arnkelsson var með þrjú. 

Stjarnan er enn í 6. sæti, nú með 13 stig eftir sigurinn, en Fram er í 9. sæti með átta stig, þremur stigum frá sæti í úrslitakeppninni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert