Frakkar sterkari en Svartfellingar

Franska liðið fagnar sætinu í undanúrslitunum.
Franska liðið fagnar sætinu í undanúrslitunum. AFP

Frakkland er annað liðið sem tryggir sér sæti í undanúrslitum heimsmeistaramóts kvenna í handbolta eftir 25:22-sigur á Svartfjallalandi í átta liða úrslitunum í dag. Staðan í hálfleik var 12:10 og var franska liðið ávallt líklegra til sigurs. 

Allison Pineau skoraði fimm mörk fyrir Frakka og Siraba Dembele og Alexandra Lacrabere gerðu fjögur mörk hvor. Katarina Bulatovic var langbesti leikmaður Svartfellinga með níu mörk. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert