Fádæma yfirburðir hjá Norðmönnum

Norska liðið fagnar í kvöld.
Norska liðið fagnar í kvöld. AFP

Þórir Hergeirsson stýrði norska kvennalandsliðinu í handbolta til stórsigurs gegn Rússlandi í átta liða úrslitum HM í kvöld, 34:17, en staðan í hálfleik var 15:8. Norska liðið var yfir allan leikinn og eins og lokatölurnar gefa til kynna var leikurinn langt frá því að vera spennandi. 

Nora Mørk var enn og aftur markahæst hjá norska liðinu. Hún skoraði níu mörk, Stine Bredal Oftedal var með átta og Veronica Kristiansen skoraði fimm mörk. Anna Kochetova var markahæst hjá Rússum með fimm mörk. 

Norska liðið mætir því hollenska í undanúrslitum, en þjóðirnar hafa mæst í úrslitaleik í tveimur af síðustu þremur stórmótum og má því búast við spennuleik. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert