Fram sló Aftureldingu úr leik

Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði átta mörk fyrir Fram.
Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði átta mörk fyrir Fram. mbl.is/Árni Sæberg

Fram vann nokkuð óvæntan 30:26-sigur á Aftureldingu í 16-liða úrslitum Coca Cola-bikar karla í handbolta í kvöld. Staðan í leikhléi var 14:9, Fram í vil. 

Arnar Birkir Hálfdánsson var eins og oft áður, markahæstur Framara með átta mörk og Andri Þór Helgason skoraði sex. Tíu mörk Árna Braga Eyjólfssonar fyrir Aftureldingu dugðu skammt. 

Þróttur R. er einnig kominn áfram í 8-liða úrslit, þar sem andstæðingar og nafnar þeirra frá Vogum mættu ekki til leiks í fyrirhuguðum leik þeirra í 16-liða úrslitunum. Þróttur R. fær því dæmdan 10:0-sigur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert