Fylkir nældi í sinn þriðja sigur

Fylkir hafði betur gegn Víkingi í kvöld.
Fylkir hafði betur gegn Víkingi í kvöld. Ljósmynd/Fylkir.com

Fylkir vann sinn þriðja sigur í 1. deild kvenna, Grill 66 deildinni í handbolta með 24:23-sigri á Víkingi í Fossvogi í kvöld. Víkingur var með 14:12-forskot í leikhléi en Fylkiskonur voru sterkari í síðari hálfleik.

Elín Rósa Magnúsdóttir skoraði sjö mörk fyrir Fylki og Hrafnhildur Irma Jónsdóttir gerði fimm mörk. Rebekka Friðriksdóttir skoraði átta mörk fyrir Víking og Sigríður Ólafsdóttir bætti við sex mörkum. 

Fylkir fór upp í sex stig og er í 7. sæti en Víkingur er í 5. sæti með sjö stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert