Valur með þriggja stiga forskot um jólin

Diana Satkauskaité átti góðan leik í kvöld.
Diana Satkauskaité átti góðan leik í kvöld. mbl.is/Árni Sæberg

Topplið Vals þurfti að hafa fyrir hlutunum er það mætti Fjölni í Dalhúsum í Olísdeild kvenna í handbolta í kvöld. Lokatölur voru 29:25, Val í vil en staðan í hálfleik var 17:13. 

Eins og svo oft áður var það hin litháenska Diana Satkausaite sem var markahæst með átta mörk. Gerður Arinbjarnar, Kristín Guðmundsdóttir og Birta Fönn Sveinsdóttir voru með fjögur mörk hver. Hjá Fjölni voru þær Berglind Benediktsdóttir og Andrea Jacobsen í sérflokki með átta mörk hvor. 

Valskonur fara með þriggja stiga forskot á toppi deildarinnar í jólafríið. Valur er eina ósigraða lið deildarinnar eftir 12 umferðir. Fjölnir er enn í sjöunda og næstneðsta sæti og í fallbaráttu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert