Tommamótið Víðidal 7. og 8. september

Tómas Ragnarsson og Börkur á fljúgandi skeiði.
Tómas Ragnarsson og Börkur á fljúgandi skeiði.

Tommamótið verður nú haldið í annað sinn til minningar um hestamanninn Tómas Ragnarsson, sem lést langt um aldur fram hinn 16. júlí 2010.

Vinir og velunnarar Tómasar hafa ákveðið að stofna minningarsjóð í nafni og anda Tómasar og verður skipuð stjórn sem úthlutar úr sjóðnum til þarfra verka tengdra hestum og hestamönnum einu sinni til tvisvar á ári. Tómas var einmitt þekktur fyrir hjálpsemi sína gagnvart öðrum og var alltaf hægt að leita til hans.

Að þessu sinni verður skráningargjald kr. 2000 pr. grein sem rennur óskipt í minningarsjóð Tómasar Ragnarssonar, en allir sem koma að mótinu munu gefa vinnu sína.

Um er að ræða opið íþróttamót og verður keppt í eftirfarandi greinum:

100 m skeið

150 m skeið

250 m skeið

Tölt T3 opinn flokkur

Tölt T4

Tölt T7 byrjendaflokkur (ekki hraðabreytingar)

Fimmgangur F2 opinn flokkur

Bjórreið

Samanlagður sigurvegari á sama hesti í fimmgangi, tölti og einni
skeiðgrein.

Sex keppendur verða í hverjum úrslitum.

Dagskrá verður birt að lokinni skráningu en gera má ráð fyrir forkeppni á föstudegi og úrslitum á laugardegi.

Skráning fer fram í Hestamiðstöðinni Víðidal á miðvikudag (5. september) frá kl. 17 til 21 og í símum 867-0177, 867-0157 og 772-0202.

Við skráningu þarf að gefa upp IS-nr. hests, kennitölu og síma knapa. Skráningargjald greiðist við skráningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert