„Þetta er besta afmælisgjöfin“

Afmælisbarnið Þóra Höskuldsdóttir og Huldar frá Sámsstöðum.
Afmælisbarnið Þóra Höskuldsdóttir og Huldar frá Sámsstöðum. mbl.is/Þórunn

„Þetta er besta afmælisgjöfin,“ segir Þóra Höskuldsdóttir sem vann B-úrslitin í ungmennaflokki á Huldari frá Sámsstöðum með einkunnina 8,62. Hún á afmæli í dag og er 19 ára. Þóra segir Huldar vera flugrúman og viljugan hest sem gaman er að vinna með. „Við ætlum allavega að gera okkar besta í A-úrslitum á laugardaginn,“ segir hún. Þóra keppir fyrir hestamannafélagið Létti á Akureyri. Þau mæta í A-úrslit í ungmennaflokki sem eru á laugardaginn eins og öll A-úrslit á mótinu.

Hér má sjá niðurstöður úr B-úrslitum í ungmennaflokki.   

B-úrslit ungmennaflokkur.
B-úrslit ungmennaflokkur. mbl.is/Þórunn
Snorri Egholm Þórsson og Sæmd frá Vestra-Fróðholti.
Snorri Egholm Þórsson og Sæmd frá Vestra-Fróðholti. mbl.is/Þórunn
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert