Spánverjar með verðmætasta leikmannahópinn

Landslið Spánar á eflaust eftir að gleðja stuðningsmenn sína á …
Landslið Spánar á eflaust eftir að gleðja stuðningsmenn sína á HM í fótbolta. mbl.is/afp

Spánn, Argentína og Brasilía eru með dýrustu leikmannahópana af liðunum 32 sem taka þátt á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í Brasilíu í sumar í úttekt sem viðskiptablaðið Valor lét gera.

Leikmannahópur heims- og Evrópumeistara Spánar er metinn á 487 milljónir evra sem jafngildir rúmlega 75,7 milljörðum íslenskra króna.

Leikmannahópur Argentínu er metinn á 474 milljónir evra sem jafngildir 73,7 milljörðum íslenskra króna og brasilíski leikmannahópurinn er metinn á 470 milljónir evra eða rúmlega 73 milljarða íslenskra króna.

Sjá nánar um þetta mál í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert