Pinto hættur með Kostaríku

Jorge Luis Pinto er hættur sem landsliðsþjálfari Kostaríku.
Jorge Luis Pinto er hættur sem landsliðsþjálfari Kostaríku. AFP

Jorge Luis Pinto er hættur sem þjálfari Kostaríku, en þetta var tilkynnt í kvöld. Pinto er Kólumbíumaður og vakti athygli með lærisveinum sínum á heimsmeistaramótinu í Brasilíu þar sem liðið komst í átta liða úrslit í fyrsta sinn.

„Ég áttaði mig á því að ég gat ekki treyst á að ég gæti unnið mína vinnu og því náði ég ekki samkomulagi um nýjan samning,“ sagði Pinto í yfirlýsingu.

Pinto tók við liði Kostaríku í annað sinn árið 2011 og tryggði þjóðinni sæti á HM í fjórða sinn í sögu þess, þar sem liðið tapaði í átta liða úrslitum gegn Hollandi eftir vítakeppni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert