Tíu marka sigur Svía á HM

Marco Oneto skorar eitt af mörkum Sílemanna gegn Svíum í …
Marco Oneto skorar eitt af mörkum Sílemanna gegn Svíum í kvöld. Reuters

Svíar unnu öruggan sigur á Sílemönnum, 28:18, í opnunarleik heimsmeistaramótsins í handknattleik en leikið var í Scandinavium höllinni í Gautaborg. Svíar höfðu undirtökin allan tímann eins og við var að búast og í leikhléi var staðan, 15:8.

Kim Ekdahl Du Rietz var markahæstur í liði Svía með 6 mörk og næstur kom Oscar Carlén með 5. Emil Feutchmann var atkvæðamestur í liði Síle með 4 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert