Svíar tróna á toppnum

Lukas Karlsson og Andreas Nilsson fagna sigri Svía í kvöld.
Lukas Karlsson og Andreas Nilsson fagna sigri Svía í kvöld. AFP

Svíar eru efstir í C-riðli heimsmeistaramóts karla í handknattleik í Katar eftir þægilegan sigur á Alsírbúum, 27:19, í kvöld.

Svíar eru þá með 6 stig, Frakkar 5, Egyptar 4, Íslendingar 3, Tékkar og Alsírbúar ekkert, þegar þremur umferðum er lokið af fimm. Fjögur efstu liðin fara áfram og nú liggur fyrir að Íslandi nætir jafntefli gegn Tékkum á fimmtudaginn til að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitunum.

Jonas Källman skoraði 6 mörk fyrir Svía í kvöld og Andreas Nilsson 4 en Hichem Daoud var markahæstur Alsírbúa með 4 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert