Íþróttafréttamaðurinn Guðjón Valur

Guðjón Valur Sigurðsson skoraði þrettán mörk í sínum fimmtugasta leik í lokakeppni heimsmeistaramóts, gegn Egyptum í Doha í kvöld, og átti stóran þátt í að koma íslenska liðinu í sextán liða úrslit HM.

Eftir strembna riðlakeppni gátu Guðjón Valur og þeir Ívar Benediktsson íþróttafréttamaður mbl.is og Golli ljósmyndari brugðið á leik. 

Þegar þeir höfðu tekið hefðbundið viðtal við Guðjón snerust hlutverkin við í smástund og hann brá sér í hlutverk íþróttafréttamannsins.

Hvernig til tókst má sjá á myndskeiðinu hér að ofan!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert