„Enginn óskamótherji“

Danir fagna sigri gegn Pólverjum.
Danir fagna sigri gegn Pólverjum. EPA

„Það er ekki hægt að segja að Íslendingar séu neinir óskamótherjar,“ segir danski landsliðsmaðurinn Bo Spelleberg.

Íslendingar og Danir mætast í 16-liða úrslitum á HM í handknattleik á mánudaginn en þetta varð ljóst eftir lokaumferð riðlakeppninnar.

„Við höfum oft mætt Íslendingum og það hafa verið hörkuleikir og spennandi. Við hefðum getum fengið auðveldari mótherja en við höfum haft betur á móti þeim í mikilvægum leikjum,“ sagði Spellerberg.

Leikur Íslendinga og Dana fer fram á mánudaginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert