Gaman að sjá doktorsritgerð um þetta

„Við ætluðum okkur miklu meira en við náðum að gera í kvöld,“ sagði Vignir Svavarsson, varnarmaður íslenska landsliðsins, eftir að það féll úr leik á HM í handbolta í Katar í kvöld.

Ísland byrjaði leikinn gegn Dönum afar illa og lenti 5:0 undir, en lokatölur urðu 30:25.

„Það væri gaman að sjá einhverja doktorsritgerð um þetta. Við byrjuðum illa í mörgum leikjum á mótinu og það er eitthvað sem við verðum að skoða, því þetta gengur ekki svona,“ sagði Vignir. Nánar er rætt við hann í meðfylgjandi myndbandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert