„Ég er mjög ánægður með yfirvegunina, vörnina og markvörsluna í þessum leik. Okkur tókst að halda Egyptunum í skefjum allan leikinn og leyfðum þeim aldrei að ná upp stemningu. Það var mikilvægt,“ sagði Dagur Sigurðsson, landsliðsþjálfari Þjóðverja, eftir afar sannfærandi sigur þeirra á Egyptum, 23:16, á HM í Katar í gær.
Þjóðverjar mæta þar með Katarbúum, gestgjöfunum, í átta liða úrslitum á morgun og eru líklegir til að fara alla leið í leikina um verðlaunasæti, miðað við frammistöðuna til þessa.
Carsten Lichtlein átti stórleik í marki Þjóðverja en hann varði þrjú vítaköst og alls ellefu skot í fyrri hálfleik og hélt síðan hreinu fyrstu átta mínúturnar í seinni hálfleik þegar Þýskaland breytti stöðunni úr 12:8 í 17:8. Samtals varði Lichtlein 20 skot í leiknum. „Það er afar mikilvægt að fá svona góða markvörslu til þess að létta pressu af liðinu,“ sagði Dagur um frammistöðu markvarðarins.