Hansen hrósar Guðmundi

Mikkel Hansen og samherjar hans fá hér skilaboð frá Guðmundi …
Mikkel Hansen og samherjar hans fá hér skilaboð frá Guðmundi Guðmundssyni. EPA

Mikkel Hansen stórstjarna danska landsliðsins í handknattleik hrósar landsliðsþjálfaranum Guðmundi Guðmundssyni í hástert.

„Það er ekkert meira hvetjandi fyrir leikmann en að sjá þjálfara sem er 100% tilbúinn. Við erum mjög vel undirbúnir undir hvern leik. Hann fer vel yfir andstæðinga okkar og greinir hverjir eru veikleikar þeirra og styrkleikar,“ sagði Hansen í viðtali við dönsku sjónvarpsstöðina TV2.

Guðmundur hefur löngum verið þekktur fyrir það að kortleggja andstæðinginn afar vel og á stórmótum hefur hann eytt drjúgum hluta næturinnar í að klippa myndbönd af væntanlegum mótherjum og af eigin liði.

„Það er enginn vafi á því að Guðmundur er mjög faglegur í sínu starfi og hann undirbýr sig afar vel. Hann getur líka verið léttur í bragði og komið með brandara en jafnvægið er gott í því sem hann gerir,“ segir Hansen.

Danir mæta sjálfum heimsmeisturum Spánverja í átta liða úrslitunum á HM í Katar á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert