Leikirnir um sæti 5-8 heimsmeistaramótinu í handknattleik í Katar hefjast á föstudaginn en þá verða einnig leikirnir í undanúrslitunum.
Danir etja kappi við Slóvena og Þjóðverjar mæta Króötum. Sigurliðin úr þessum leikjum spila um 5. sætið og tapliðin um 7. sætið. Liðið sem endar í 8. sætinu kemst ekki í umspil um sæti á Ólympíuleikunum í Ríó á næsta ári. Liðin sem enda í sætum 2-7 fara í umspilið en heimsmeistararnir fá farseðil á Ólympíuleikana.
Leikirnir á föstudaginn eru þessir:
Undanúrslit:
15.30 Pólland - Katar
18.00 Spánn - Frakkland
Leikirnir um 5.-8. sæti:
13.00 Króatía - Þýskaland
15.30 Danmörk - Slóvenía