Tveir getspakir Íslendingar á leið til Katar

Ístenskir stuðningsmenn á HM í Katar.
Ístenskir stuðningsmenn á HM í Katar. mbl.is

Tveir Íslendingar eru á leið í boðsferð á heimsmeistaramótið í handknattleik til Katar þar sem þeir fylgjast með úrslitahelginni.

Þeir Óli Ævarsson og Þórir Ólafsson höfnuðu á meðal þriggja efstu í getraunarleik sem Alþjóða handknattleikssambandið var með á heimasíðu sinni. Þar gafst fólki kostur á að spá fyrir um úrslit leikja í riðlakeppninni á HM.

Sjá frétt á heimasíðu Alþjóða handknattleikssambandsins

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert