Gajic með níu fingur á markakóngstitlinum

Dragan Gajic.
Dragan Gajic. EPA

Það stefnir alli í að slóvenski hornamaðurinn Dragan Gajic verði markakóngur á heimsmeistaramótinu í handknattleik í Katar.

Gajic er markahæstur en hann hefur skorað 71 mark en Slóvenar luku keppni í dag þegar þeir töpuðu fyrir Þjóðverjum í leiknum um 7. sætið. Sá eini sem getur skotist upp fyrir Gajic er Zarko Markovic leikmaður Katar en hann þarf þá að skora 12 mörk í úrslitaleiknum á móti Frökkum á morgun. Það verður að teljast frekar ólíklegt.

Markahæstu leikmenn eru:

71 - Dragan Gajic, Slóveníu
60 - Zarko Markovic, Katar
54 - Uwe Gensheimer, Þýskalandi
52 - Rodrigo Salinas, Síle
45 - Kiril Lazarov, Makedóníu

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert