Unnu alla nema Íslendinga

Línumaður Frakka, Cedric Sorhaindo kyssir á skallann á Danijel Saric, …
Línumaður Frakka, Cedric Sorhaindo kyssir á skallann á Danijel Saric, liðsfélaga sínum hjá Barcelona, og markverði landsliðs Katar eftir sigurinn á HM í dag. AFP

Nýkrýndir heimsmeistarar Frakka í handknattleik karla unnu átta af níu leikjum sínum á heimsmeistaramótinu sem lauk í Luseil-íþróttahöllinni skammt utan við Doha í Katar í dag. Eini leikurinn sem franska landsliðið vann ekki á mótinu var gegn Íslendingum. 

Liðin skildu jöfn í riðlakeppninni, 26:26, í langbesta leik íslenska landsliðsins á heimsmeistaramótinu. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert