Björgvin Páll hefur varið flest vítaköst

Björgvin Páll Gústavsson hefur reynst sannkallaður vítabani á HM til …
Björgvin Páll Gústavsson hefur reynst sannkallaður vítabani á HM til þessa. AFP

Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmarkvörður í handknattleik, hefur varið sex af þeim 11 vítaköstum sem hann hefur spreytt sig á að verja á heimsmeistaramótinu í Frakklandi. Enginn af markvörðum keppninnar hefur varið fleiri vítaköst en Björgvin Páll. Hann varði eitt vítakast frá Túnisbúum í gær, tvö frá Slóvenum á laugardaginn og þrjú í upphafsleik Íslands á HM á móti Spánverjum.

Björgvin Páll skoraði mark gegn Spáni á fimmtudaginn, en það var í fyrsta sinn sem íslenskur markvörður skorar í kappleik á heimsmeistaramóti. Alls hafa íslensk landslið skorað 2.841 mark í 115 leikjum á nítján heimsmeistaramótum frá árinu 1958.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert