Frábær árangur hjá körfuboltastelpunum

Guðbjörg Sverrisdóttir úr Haukum skoraði 15 stig í úrslitaleiknum.
Guðbjörg Sverrisdóttir úr Haukum skoraði 15 stig í úrslitaleiknum. Heimasíða KKÍ

U-16 ára landslið kvenna í körfuknattleik tryggði sér í dag sigur í C-deild Evrópukeppninnar í körfuknattleik með því að bera sigurorð af Albönum í úrslitaleik, 74:41, en mótið fór fram í Mónakó..

Í hálfleik var staðan, 39:23, en í síðari hálfleik tóku íslensku stúlkurnar öll völd á vellinum.  Guðbjörg Sverrisdóttir úr Haukum, yngri systir Helenu Sverrisdóttur, fór mikinn en hún skoraði 15 stig, tók 16 fráköst og stal 8 boltum.

Stig Íslands: Ína María Einarsdóttir 16, Guðbjörg Sverrisdóttir 15, Dagmar Traustadóttir 9, Berglind Gunnarsdóttir 7, Rannveig Ólafsdóttir 7, Bergdís Ragnarsdóttir 6, Heiðrún Kristmundsdóttir 5, Telma Lind Ásgeirsdóttir 4, Sara Mjöll Magnúsdóttir 3, Hrafnhildur Sif Sævarsdóttir 2.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka