Körfuknattleikslið Þórs á Akureyri hefur komist að samkomulagi við bandaríska leikmanninn Daniel Bandy um að leika með liðinu þar til Cedric Isom verður búinn að ná sér af meiðslum sínum.
Bandy er 177 sentímetrar, 24 ára gamall leikstjórnandi og þykir bæði snöggur og mikil og góð skytta.
Hrafn Kristjánsson, þjálfari Þórs, segir á heimasíðu félagsins að ákveðið hefði verið að leita að leikmanni til að fylla skarð Isom þegar ljóst varð að endurhæfingin tæki lengri tíma en gert hafi verið ráð fyrir í upphafi.