Körfuknattleikslið Njarðvíkur í karlaflokki er að berast liðsauki fyrir endasprett úrvalsdeildarinnar. Stjórn félagsins er að ganga frá samningi við Heath Sitton um leika með liði þess út leiktíðina. Sitton þekkir aðeins til í herbúðum Njarðvíkur því hann æfði og lék með liðinu á undirbúningstímabilinu en varð síðan frá að hverfa eftir að harðna tók á dalnum á haustmánuðum.
Sitton er leikstjórnandi en slíkan leikmann hefur Njarðvíkurliðið vantað í vetur.
Njarðvík er í 6. sæti Iceland Express-deildar með 14 stig að loknum 15 leikjum.
Frá þessu er greint á karfan.is.