Boston van Philadelphia, 100:99, í æsispennandi leik í NBA-deildinni í körfuknattleik í nótt. Þetta var 12. sigur Boston-liðsins í röð í deildinni. Ray Allen tryggði liðinu sigurinn með þriggja stiga körfu þegar hálf sekúnda var til leiksloka.
Paul Pierce gerði 29 stig fyrir Boston, fyrrgreindur Allen var með 23 stig og Glen Davis gerði 12 stig og tók 11 fráköst. Kevin Garnett var veikur og missti af leiknum í nótt og var um að ræða annan leikinn í röð sem hann getur ekki tekið þátt í vegna veikinda.
Andre Iguodala var stigahæstur leikmanna Philadelphia með 22 stig og Andre Miller gerði 21 stig.
Jameer Nelson einn af sterkari leikmönnum Orlando gæti misst af því sem eftir er af leiktíðinni vegna meiðsla í hægri öxl. Það skýrist betur í dag þegar hann fer í nánari rannsókn.
Sex leikir voru á dagskrá NBA-deildarinnar í nótt og voru úrslit þeirra sem hér segir:
Cleveland - Toronto 101:83
Minnesota - Indiana 116:111
Boston - Philadelphia 100:99
New Jersey - Milwaukee 99:85
Houston - Chicago 107:100
Denver - San Antonio 104:96