Íþróttir
|
Körfubolti
| mbl
| 22.2.2012
| 23:51
Kristrún: Eigum séns á að komast í úrslitakeppnina
Kristrún Sigurjónsdóttir skoraði 21 stig fyrir Val þegar liðið sigraði Fjölni í Grafarvoginum í kvöld 79:67.
Þegar fimm umferðir eru eftir af deildakeppninni er Valur sex stigum frá sæti í úrslitakeppninni og á því enn von.
„Það eru að koma leikir inn á milli þar sem við erum að vinna góða sigra og sannfærandi sigra eftir slappt gengi í byrjun. Ég held eins og staðan er núna að við eigum séns á því að komast inn í úrslitakeppnina og það er náttúrlega bara markmiðið að ná því. Það þýðir sigur í hverjum leik,“ sagði Kristrún meðal annars við mbl.is að leiknum loknum í kvöld.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






