Jeremy Lin til Lakers

Jeremy Lin mun leika með Los Angeles Lakers næsta vetur.
Jeremy Lin mun leika með Los Angeles Lakers næsta vetur. AFP

Los Angeles Lakers hefur samið við Jeremy Lin um að leika með félaginu í NBA deildinni í körfubolta á næstu leiktíð. Lin sem sló eftirminnilega í gegn með New York Knicks veturinn 2011-2012 hefur verið síðustu tvö ár í herbúðum Houston Rockets.

Lin skoraði að meðaltali 12,5 stig í leik fyrir Houston á síðustu leiktíð, tók 2,6 fráköst og gaf 4,8 stoðsendingar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert