LeBron aftur númer 23 hjá Cleveland

LeBron James mun leika í treyju númer 23 hjá Cleveland …
LeBron James mun leika í treyju númer 23 hjá Cleveland eins og þegar hann lék síðast með félaginu. AFP

Sextán dögum eftir að LeBron James tilkynnti að hann hefði ákveðið að snúa aftur til Cleveland Cavaliers eftir fjögurra ára dvöl hjá Miami Heat í NBA-deildinni í körfubolta, hefur bandaríska körfuboltastjarnan nú valið sér númer hjá Cleveland.

James valdi sér númerið 23 sem er sama númer og hann spilaði í hjá Cleveland á árunum 2003-2010. Þegar hann gekk í raðir Miami á sínum tíma valdi hann hins vegar að spila í treyju númer 6 eins, eins og hann hefur gert með bandaríska landsliðinu á Ólympíuleikum.

Margir Bandaríkjamenn höfðu beðið spenntir eftir því að LeBron James veldi sér númer, því nú munu Cleveland-treyjur seljast eins og heitar lummur. Talsmaður Adidas sagði við ESPN-fréttavefinn að 20 prentvélar væru nú á fullu að merkja Cleveland-treyjur með nafni LeBron James og númerinu 23, aðeins í Indianapolis, því búist er við mikilli treyjusölu strax á fyrstu klukkutímunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert